Episode Description
Loftslagskrísan er enn eitt helsta viðfangsefni samfélagsins og nú er tækifæri til breytingar þegar hagkerfið er endurreist. Ann Pettifor, hagfræðingur og höfundur „The Case for the Green New Deal“ er ein af upphafshugsuðum um grænan nýjan samfélagssáttmála sem hefur verið í þróun beggja vegna Atlantshafsins. Hún fjallar um hvernig við getum breytt hagkerfinu þannig að það verndi og vinni fyrir umhverfið.
Erindið er hluti af hádegisfundaröð Vörðu - rannsóknastofnunar vinnumarkaðarins, ASÍ og BSRB þar sem fjallað er um réttu leiðina út úr kreppunni. Á fundunum er fræðileg umfjöllun fléttuð saman við reynslu af skipulögðu starfi verkalýðshreyfingarinnar og annarra almannasamtaka.
Hægt er að horfa á upptöku af erindinu, með texta, á heimasíðu Vörðu rannvinn.is og á Youtube (https://www.youtube.com/watch?v=MaWbh7uClqY&feature=emb_logo)