Episode Description
Liverpool voru ekki lengi að henda öllu því jákvæða frá vikunni á undan út um gluggann á Etihad með einni linustu frammistöðu tímabilsins og er þá nú töluvert mikið sagt. Það féll sannarlega ekkert með Liverpool í þessum leik og niðurstaðan því stærsta tap Arne Slot sem stjóri Liverpool. Hann er heldur betur að slá flest sín met hvað slæma tölfræði varðar þessa dagana því miður. Hjálpaði sannarlega ekki á Etihad að öll vafaatriði og “vafaatriði” féllu með aðeins öðru liðinu en það afsakar lítið heildar frammistöðu liðsins.
Mjög langt landsleikjahlé framundan núna og svo áhugavert leikjaprógramm fram að jólum sem ætti að gefa Liverpool tækifæri til að sýna okkur eitthvað betra en við höfum séð hingað til.
Stjórnandi: Einar Matthías
Viðmælendur: Maggi og Sveinn Waage
Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.

Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Delottie / Ögurverk ehf
MP3: Þáttur 543
