Episode Description
Á þessu fyrsta Flaneríi hringsólum við undir og yfir götur, stíga og byggingar. Skoðum útilistaverk í nágrenni menningarhúsanna og veltum fyrir okkur geislum sólarinnar, hreyfingunni í kringum okkur og spyrjum hvort við eigum ekki eitthvað í þessu öllu saman.
Gengið er frá menningarhúsunum, að Sólarslóð Theresu Himmer, undir Borgarholtsbrautina og upp að Kópavogskirkju þar sem gluggar listakonunnar Gerðar Helgadóttur eru í forgunni.
Kort af göngunni má nálgast á flaneri.is
- 00:00 Upphafsstaður - Menningarhúsin í Kópavogi
- 01:15 Gengið að Hálsatorgi
- 01:50 Sólarslóð - Theresa Himmer
- 05:35 Gengið að Borgarholtsbraut - Jón Proppé
- 09:18 Göng undir Borgarholtsbraut
- 10:45 Upp að Kópavogskirkju
- 15:25 Kópavogskirkja - Séra Sigurður Arnarson
- 17:07 Gengið í kring um kirkjuna - Gerður Helgadóttir
- 21:40 Gengið niður Borgarholtið
- 24:48 Frjáls för um svæðið
- 28:30 Kreditlisti
Flanerí KÓP er styrkt af Lista- og menningarráði Kópavogsbæjar.